Birgir Ármannsson

| Hringlandaháttur Ingibjargar Sólrúnar |
|
Birtist í Morgunblaðinu 3.mars 2006
Nokkrum dögum síðar var þess getið í greinargerð alþjóðlegs matsfyrirtækis að skattar hefðu verið lækkaðir hér á landi og um leið var varað við aukningu opinberra útgjalda og þenslu í hagkerfinu. Ekki þurfti meira til. Ingibjörg Sólrún sneri algerlega við blaðinu og ritaði síðari grein sína í Morgunblaðið þar sem hún gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega fyrir lækkun skatta. Ríkisstjórnin hefði gert ,,hið öndverða” við það sem Samfylkingin hefði lagt til fyrir síðustu kosningar og meðal annars lögfest ,,lækkun tekjuskatta langt fram í tímann”, eins og hún orðar það. Þegar við þennan hringlandahátt bætist að það er rangt hjá formanninum að Samfylkingin hafi ekki sagst vilja skattalækkanir fyrir síðustu kosningar - flokkurinn þóttist þvert á móti vilja talsverða lækkun skatta þótt almenningur hafi sem betur fer ekki trúað því - þá fara menn að efast um að heil brú sé í afstöðu formanns Samfylkingarinnar til skattamála. Er til of mikils mælst að formenn stjórnmálaflokka, jafnvel Samfylkingarinnar, haldi sig við eina skoðun á sama málinu innan sama mánaðar? |
