Borði

Birgir Ármannsson

birgir1.jpg
Bakkabræður - og systur
Morgunblaðið, 4. febrúar 2009
eftir Birgi Ármannsson
Í verkefnaskrá nýrrar ríkisstjórnar er eftirfarandi klausa: „Engin ný áform um álver verða á dagskrá ríkisstjórnarinnar.“ Í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins á mánudagskvöld var viðtal við umhverfisráðherra, Kolbrúnu Halldórsdóttur, þar sem hún skýrði þessi orð með þeim hætti, að álver á Bakka við Húsavík væri ekki á dagskrá stjórnarinnar. Um það bil hálftíma síðar birti Stöð 2 viðtal við iðnaðarráðherra, Össur Skarphéðinsson, þar sem hann kvað jafn skýrt að orði. Munurinn var bara sá að Össur sagði að ákvæðið í verkefnaskránni hefði engin áhrif á fyrirhugaðar framkvæmdir við álverið á Bakka.
Ráðherrarnir og flokkar þeirra hafa valið að starfa saman í ríkisstjórn og hafa komið sér saman um verkefnaskrá. Þeim er hins vegar mikill vandi á höndum ef þau ætla að túlka einstök ákvæði hennar hver með sínum hætti. Þetta verður jafnvel enn vandræðalegra þegar skoðuð eru orð varaformanns Framsóknarflokksins, Birkis J. Jónssonar, en hann sagði í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins á þriðjudag, að hann myndi ekki verja ríkisstjórnina vantrausti, nema hún væri tilbúin til að fylgja eftir álversáformunum fyrir norðan. Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna byggir tilveru sína sem kunnugt er á því að Framsóknarflokkurinn muni verja hana vantrausti. Líf ríkisstjórnarinnar virðist því vera undir því komið að túlkun iðnaðarráðherrans sé rétt en túlkun umhverfisráðherrans röng.