Birgir Ármannsson

| Furðuleg mótsögn |
|
Morgunblaðið, 7. mars 2009 Ríkisstjórnin hefur nú lagt fram á Alþingi frumvarp til breytinga á stjórnarskránni og fengið í lið með sér formann Frjálslynda flokksins og varaformann Framsóknarflokksins. Frumvarpið og aðdragandi málsins allur er með afar óvenjulegum hætti miðað við fyrri breytingar á stjórnarskrá og má í því sambandi nefna nokkur atriði. Í fyrsta lagi er frumvarpið unnið af þröngum ráðgjafahópi ríkisstjórnarinnar en ekki í samstarfi allra flokka eins og ávallt hefur verið gert undanfarna hálfa öld að minnsta kosti. Í öðru lagi á frumvarpið sér miklu skemmri aðdraganda en venja er um mál af þessu tagi og í þriðja lagi er þinginu ætlaður mjög skammur tími til að afgreiða það. Þegar stjórnarskrárbreytingar hafa verið gerðar á undanförnum árum og áratugum hefur þinginu jafnan verið gefinn rúmur tími til málsmeðferðar, enda hér um að ræða grundvallarreglur samfélagsins, þau lög sem önnur lög verða að byggja á. Það er því alveg sérstaklega mikilvægt að vandað sé til verka og að afgreiðsla fari ekki fram í óðagoti. Öll þessi málsmeðferð vekur furðu og kallar á hörð viðbrögð af hálfu Sjálfstæðisflokksins. Flokkurinn hefur verið tilbúinn að breyta ýmsum ákvæðum stjórnarskrárinnar og tók af fullum heilindum þátt í starfi stjórnarskrárnefndar 2005-2007 með það að markmiði að fram færi heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar. Það eru hins vegar ekki boðleg vinnubrögð að handvelja út nokkur tiltekin atriði og koma með þau inn í þingið án samráðs þegar örstutt er til kosninga. Um efnisatriði tillagna ríkisstjórnarinnar mun ég fjalla síðar. Ég verð þó að vekja athygli á þeirri óskiljanlegu mótsögn sem felst í því að ríkisstjórnin skuli leggja fram margvíslegar tillögur um efnisbreytingar á stjórnarskránni, sem hún vill afgreiða fyrir vorið, en leggi samhliða fram tillögu um stjórnlagaþing, sem á að hefja störf í haust og hafa það hlutverk að endurskoða stjórnarskrána í heild. Ég væri þakklátur ef einhver forystumaður ríkisstjórnarinnar gæti skýrt þetta atriði fyrir mér. |
