Birgir Ármannsson

| Fylgist Jóhanna ekki með bankamálunum? |
|
13. mars 2009 Eftir Birgi Ármannsson Endurskipulagning bankakerfisins er eitt af forgangsverkefnum stjórnvalda um þessar mundir. Mikilvægt er að sem fyrst verði unnt að átta sig á skilum milli gömlu bankanna og þeirra nýju, leggja fram efnahagsreikninga og átta sig á þörfinni fyrir endurfjármögnun þeirra. Þetta verkefni hefur þegar tekið mun lengri tíma en áætlað hafði verið fyrr í vetur. Það er að vissu leyti skiljanlegt í ljósi þess að verkefnið er bæði flókið og viðamikið. Það breytir hins vegar ekki þeirri staðreynd að áríðandi er að línur fari að skýrast sem fyrst í þessum efnum. Á sama hátt er áhyggjuefni þegar misvísandi upplýsingar berast um stöðu þessara mála. Á Viðskiptaþingi í gær, 12. mars, sagði forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, eftirfarandi: „Eitt helsta viðfangsefni stjórnvalda nú er að koma fjármálakerfi landsins í það horf að það geti stutt við heimilin og fyrirtækin í landinu. Þar hefur vel miðað síðustu vikur og ég er bjartsýn á að bankarnir í landinu verði orðnir vel starfhæfir innan einungis fárra vikna. Það hefur háð starfsemi bankanna að efnahagsreikningur þeirra hefur ekki verið endanlega skilgreindur og bankar sem búa við slíka óvissu eiga vitanlega örðugt með að starfa eðlilega. Við vitum að bankar eins og önnur fyrirtæki þurfa að byggja ákvarðanir sínar á traustum upplýsingum um eigin stöðu. Mati á eignum nýju bankanna mun ljúka fyrir lok þessa mánaðar og það er vissulega mikilvægur áfangi. Samkvæmt áætlunum verður þetta mat síðan staðfest af óháðum ráðgjöfum um miðjan aprílmánuð og þar með verður skotið traustari stoðum undir starfsemi bankanna. Það er síðan á grundvelli þessa mats sem ríkisstjórnin mun taka afstöðu til þess hversu miklum fjármunum bönkunum verða lagðir til til þess að skapa þeim svigrúm til að veita þeim sem á þurfa að halda eðlilega fjármálaþjónustu. Samkvæmt áætlunum er stefnt að því að endurfjármögnun bankanna verði lokið síðari hluta næsta mánaðar. Ég fæ ekki betur séð séð en að þessi ummæli stangist í veigamiklum atriðum á við upplýsingar um þessi efni, sem finna má á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins (www.fme.is). Þar er að finna ákvarðanir stofnunarinnar frá 6. mars. sl. um breytingu fyrri ákvarðana um tímafresti í í sambandi við uppgjör milli gömlu og nýju bankanna. Þar er gefinn frestur til 18. maí varðandi skilmála þeirra fjármálagerninga sem nauðsynlegir eru til að ljúka frágangi þessara mála eftir að niðurstöður matsaðila liggja fyrir. Hér er auðvitað um verulegt misræmi að ræða. Mikilvægt er að kallað verði eftir upplýsingum um það hvort þessum verkefnum verði lokið fyrir lok næsta mánaðar eins og forsætisráðherra segir, eða í seinni hluta maímánaðar eða síðar, eins og ráða má af ákvörðunum Fjármálaeftirlitsins. Því verður ekki trúað að forsætisráðherra hafi í gær vísvitandi verið að skapa óraunhæfar væntingar. Hins vegar er nauðsynlegt að varpa ljósi á það hvort forsætisráðherra var ekki kunnugt um ákvarðanir FME í þessu sambandi, sem teknar voru fyrir viku síðan. Slíkt væri auðvitað stóralvarlegt í ljósi þeirra miklu hagsmuna, sem tengjast þessu verkefni. Stjórnvöld eru í verulegum vanda ef hægri höndin veit ekki hvað sú vinstri er að gera í jafn mikilvægum málum. |
