Birgir Ármannsson

| Rökleysur í stjórnlagafrumvarpi |
|
Morgunblaðið, 21. mars 2009 Fyrir skömmu skrifaði ég Morgunblaðsgrein þar sem ég gagnrýndi harðlega aðdraganda stjórnlagafrumvarpsins sem nú er til meðferðar á Alþingi, skort á pólitísku samráði og fyrirætlanir um að keyra málið í gegn á örfáum vikum. Ekki hef ég orðið var við að helstu talsmenn frumvarpsins hafi gert tilraun til að svara þessari grein minni. Ég hef heldur ekki orðið var við að þessir talsmenn hafi reynt að útskýra hrópandi mótsagnir í frumvarpinu sjálfu. Ekki hefur verið útskýrt hvers vegna þar eru annars vegar lagðar til þrjár veigamiklar efnisbreytingar á stjórnarskránni samhliða því að gerð er tillaga um sérstakt stjórnlagaþing, sem á að hafa það hlutverk að endurskoða stjórnarskrána í heild. Frumvarpið gerir ráð fyrir að stjórnlagaþingið taki til starfa síðar á þessu ári. Í ljósi þess hefði auðvitað verið rökréttara að bíða með þessar tilteknu breytingar og fela stjórnlagaþinginu að taka afstöðu til þessara ákvæða eins og annarra umdeildra atriða í stjórnarskránni. Mér hefur skilist að hugmyndin um stjórnlagaþing byggist á því, að ekki sé heppilegt að alþingismenn taki ákvarðanir um stjórnarskrárbreytingar. Betra sé að fela öðrum það hlutverk. Því sé nauðsynlegt að stofna sérstakt stjórnlagaþing og tryggja að þar eigi engir alþingismenn sæti. Það vekur óneitanlega furðu, að sama fólk og flytur tillögu á þessum forsendum, skuli um leið ætlast til þess að alþingismenn geri þrjár veigamiklar breytingar á stjórnarskránni nú fyrir vorið. Er það rökrétt? Og að lokum: Hver er meiningin með því að setja á næstu vikum nýja reglu um það hvernig breyta eigi stjórnarskránni og stofna um leið til stjórnlagaþings, sem taka mun afstöðu til þess hvernig stjórnarskrárbreytingar verða afgreiddar í framtíðinni? Hafa tillöguflytjendur einhver áform um að gera stjórnarskrárbreytingar á meðan stjórnlagaþingið er enn að störfum? Er virkilega ætlunin að breyta stjórnarskránni með tveimur mismunandi aðferðum á sama tíma? Er ekki eitthvað meira en lítið bogið við slíkar ráðagerðir? |
