|
Fylgist Jóhanna ekki með bankamálunum? |
13. mars 2009 Eftir Birgi Ármannsson Endurskipulagning bankakerfisins er eitt af forgangsverkefnum stjórnvalda um þessar mundir. Mikilvægt er að sem fyrst verði unnt að átta sig á skilum milli gömlu bankanna og þeirra nýju, leggja fram efnahagsreikninga og átta sig á þörfinni fyrir endurfjármögnun þeirra. Þetta verkefni hefur þegar tekið mun lengri tíma en áætlað hafði verið fyrr í vetur. Það er að vissu leyti skiljanlegt í ljósi þess að verkefnið er bæði flókið og viðamikið. Það breytir hins vegar ekki þeirri staðreynd að áríðandi er að línur fari að skýrast sem fyrst í þessum efnum. Á sama hátt er áhyggjuefni þegar misvísandi upplýsingar berast um stöðu þessara mála.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Forgangsröð ríkisstjórnarinnar og ósannindi Össurar |
AMX 11. mars 2009 Eftir Birgi Ármannsson Margt er með ólíkindum í starfsháttum núverandi ríkisstjórnar. Dæmi um það er auðvitað tilraun forystumanna hennar til keyra í gegnum þingið breytingar á kosningalögum og stjórnarskrá án þess að eðlileg umræða eða samráð hafi farið fram við undirbúning þeirra mála. Undanfarna áratugi hafa allar breytingar á stjórnarskrá og kosningalögum, sem afgreiddar hafa verið á Alþingi, byggst á vönduðum undirbúningi, víðtæku samráði og ítarlegri og málefnalegri málsmeðferð á þingi. Núverandi ríkisstjórn og fylgiflokkar hennar ætla greinilega að ganga gegn öllum sjónarmiðum af þessu tagi nú á þessu stutta vorþingi.
|
|
Lesa meira...
|
Morgunblaðið, 7. mars 2009 Ríkisstjórnin hefur nú lagt fram á Alþingi frumvarp til breytinga á stjórnarskránni og fengið í lið með sér formann Frjálslynda flokksins og varaformann Framsóknarflokksins. Frumvarpið og aðdragandi málsins allur er með afar óvenjulegum hætti miðað við fyrri breytingar á stjórnarskrá og má í því sambandi nefna nokkur atriði.
|
|
Lesa meira...
|
|
Hvað mun stjórnlagaþing kosta? |
AMX. 7. mars 2009 Ein af þeim stjórnarskrárbreytingum sem ríkisstjórnin hefur lagt til á Alþingi felur í sér stofnun stjórnlagaþings á næsta kjörtímabili. Eitt af þeim atriðum sem skoða þarf í sambandi við þing af þessu tagi er hugsanlegur kostnaður vegna stofnunar þess og starfsemi. Með frumvarpi því sem forsætisráðherra, fjármálaráðherra, varaformaður Framsóknarflokksins og formaður Frjálslynda flokksins hafa lagt fram fylgir ekki kostnaðarmat. Þetta er því þáttur sem nauðsynlegt er að upplýsa eins og hægt er meðan á málsmeðferð á Alþingi stendur.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 3 af 20 |