Borði

Birgir Ármannsson

birgir1.jpg
Kæri Reykvíkingur

Við Íslendingar stöndum nú frammi fyrir stærri og brýnni verkefnum á sviði efnahags- og stjórnmála en um áratuga skeið. Þeir erfiðleikar sem við glímum nú við krefjast þess af okkur að við leggjum okkur öll fram, látum ekki tímabundinn mótbyr buga okkur og stöndum saman að þeirri endurreisn sem nauðsynleg er til að landið okkar geti til framtíðar verið í fremstu röð hvað lífskjör og lífsgæði varðar.

Við verðum að vera reiðubúin að horfast í augu við mistök liðinna ára en um leið megum við ekki gleyma því sem vel hefur tekist. Við þurfum að endurmeta margt og læra af reynslunni, en á sama tíma verðum við að gæta þess að glata ekki því góða sem samfélag okkar hefur upp á að bjóða.

Ég er sannfærður um að hugsjónir okkar sjálfstæðismanna séu besti grundvöllur endurreisnar sem völ er á. Virðing fyrir einstaklingnum samhliða samfélagslegri ábyrgð á jafnt við nú sem áður. Athafnafrelsi er sem fyrr grunnurinn að góðum lífskjörum en frelsinu verður jafnframt að fylgja traust og ábyrgð. Ríkið verður að vera öflugt á þeim sviðum þar sem við ætlum því hlutverk en um leið verður að gæta þess að höft og hömlur drepi ekki í dróma frumkvæði og framtak.

Á þessum grundvelli eigum við að vinna að endurreisn íslensks efnahagslífs og umbótum í samfélaginu. Ég er reiðubúinn að leggja mitt af mörkum og þess vegna gef ég kost á mér í 3. eða 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.

 

Áherslumál Birgis eru
  • Endurreisn á grundvelli frjálsræðis en ekki hafta
  • Agi og ábyrgð í viðskiptalífinu
  • Virkar aðgerðir í þágu heimila og fyrirtækja
  • Nýsköpun í atvinnulífinu – forsenda hagvaxtar
  • Traust velferðarkerfi sem hvetur en letur ekki
  • Öryggi landsmanna gagnvart innri og ytri hættum
  • Öflug löggæsla – skilvirkt réttarkerfi
  • Umbætur en ekki umbylting í stjórnarskrármálum